26.01.2008 18:55:16 / kristrún

Hún á afmæli hún Dagga, hún á afmæli í dag

Í dag er múslan okkar  hún Dagbjört Harðardóttir 21 árs, komin á þrítugsaldurinn kjellingin.:haha: 

Til hamingju með daginn elsku Dagga okkar.;)

 

Vá svöl pía maður 8)

Þórdís og Kristrún :!:


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 02:43:43 / kristrún

63 af óþekktu kyni...

Mig langaði nú bara að deila hérna aðeins smá pælingum...Þannig er að ég rakst á frétt í dag inná þeim ágæta vef mbl.is, þessi frétt var í sjálfu sér ekkert voðalega merkileg eða spennandi þannig lagað en þarna var verið að tala um hversu margir hefðu greinst með klamydíu árið 2007...en einhver x fjöldi fólks fékk sjúkdómin og einhver hluti af því karlar og annar hluti konur en þarna var líka þriðji hópurinn......en í 63 tilvikum var kyn óþekkt.8|

Kyn óþekkt...???

Hvað þýðir það... ? metromenningin kannski gengin of langt...? Nei ég meina maður bara spyr sig ;)

Heyrðu og eitt enn, fyrir þá sem ekki vissu það þá er búið að opna vefverslun með smokka, smokkur.is, heimsending og alles 8)

Kribba :D

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 19:57:58 / kristrún

ÍFÍ!!!

Ég slysaðist um daginn inná bloggið hjá samtökum sem kalla sig ÍFÍ (Ísland fyrir íslendinga) og verð nú að viðurkenna að ég lærði alveg ýmislegt af þeim, vissuð þið t.d. að pólverjar eru lituð þjóð sem á ekki heima meðal okkar, þ.e. hinnar hvítu þjóðar, einhvern veginn hélt ég alltaf að pólverjar væru svona upp til hópa hvítir haha :haha: svona getur maður nú verið vitlaus.

 

 Svo er víst bara ekki lengur hægt að fara útúr húsi án þess að vera bara umvafin þessu ''litaða'' fólki, alltaf er maður að læra eitthvað nýtt.:D

 

Heyrðu og pólverjar og ítalir þeir eru bara að stela byggingarvinnunni af okkur hvernig dirfast þeir að gera það og asíubúarnir takandi af okkur alla vinnu í fiski. Þetta er pottþétt ástæðan fyrir því að ég fékk ekki vinnu hjá Íslenskum aðalverktökum eða SÍF.....:o

 

 

Haldiði það ekki...???

Strúna ;) 

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 20:58:37 / kristrún

Sælir

Jæja það er nú orðinn alveg slatta langur tími sem hefur liðið frá því að maður bloggaði síðast, en það var einmitt í maí rétt eftir að múslan mín litla fæddist:P sem þýðir það að hún er að verða 8 mánaða litla prinsessan:o

 

 Skemmtilegur aldur þessi 8 mánaða aldur svona ef maður lítur framhjá hártogi, klípi og þeirri staðreynd að fara reglulega í slefbað....en ég er allavega alveg á því, miðað við það hversu óstjórnlega fyndin hún er að það liggur stundum við að maður standi hérna á stofugólfinu hreinlega bara búin að pissa niðr’úr (vill samt taka það fram að það hefur hingað til ekki farið svo), að hún verður svona Pablo Fransisco sinnar kynslóðar og verður án efa Fyndnasti maður Íslands, eða kona öllu heldur, svona ca. árið 2022 plús, mínus kannski 1-2 ár 8)

 

En svona fyrir utan stöku skallabletti og e.t.v. þörf á fullorðinsbleyjum á mínum bæ þá er nú mest lítið í fréttum...

Skólinn byrjaður,var að byrja mína sjöundu og SÍÐUSTU önn í Flensborg :D, þannig að það bendir svona allt til þess að 2008 verðir bara þrusu fínt ár, dimmision, útskrift og tvítugsafmæli....öss bara allt að gerast :haha:

 

Bara svona að sýna ykkur hvað hún er gorgeous ;) 

 

 

 

 

eeeen ég hef víst ekki meira að segja að sinni annað en það að ég skora á hana Þórdísi Helgadóttur að koma nú með eitt stykki blogg. Ha Tóta koma svo:D

 Kristrún :!:

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 16:34:40 / þórdís

Ennþá fleiri myndir!!

Nenni engan veginn að blogga þessa dagana, en er dugleg að setja inn myndirnar mínar....

Myndir úr afmæli Sunnu Bjargar: 

Hér

Myndir úr djammi 15.sept hjá Kristni:

hér 

Enjoy 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 23:12:46 / þórdís

Myndir myndir

Vá ég er búin að vera alveg mega dugleg að henda inn myndum seinustu daga....

Myndir frá Menningarnótt eru:

hér

Og svo Myndir frá Geggjuðu afmælisteiti hjá Bylgju og svo smá frá bænum eftir á eru:

hér

Endilega þakkið mér kærlega fyrir í komment fyrir að taka svona mikið af skemmtilegum og frábærum myndum og auðvitað ef þið viljið koma með einhverjar hlýjar og notalegar setningar í minn garð þá er það alveg sjálfsagt líka:)

Ég vildi líka bara óska elsku Sunnu minni til hamingju með afmælið í dag! 19 ára er hún loksins hnátan, koss og knús

Sæl að sinni

Þórdís


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 23:45:30 / þórdís

Sumarið -- Skólinn

Arrrgh skólinn að byrja... mér finnst ekki gaman að segja það en einhver verður að gera það!
Já sumarið var bara fínt að mínu mati, þó ég gerði kannski ekki eins mikið og mig langaði til því maður var að sjálfsögðu að vinna og ég held ég geti sagt að ég hafi unnið alveg heilan helling.
Ég er búin að kaupa flest allar bækurnar mínar og vá hvað það var leiðinlegt, ég get svo svarið fyrir það að þessi tími í þessum skiptibókabúðum eru horbjóður.
Ég og Hrefna fórum í Griffil eftir að við náðu í töfluna okkar og svona og við gátum ekki verið þarna inni því það var svona samansöfnuð skíta/svitafýla af ÖLLUM þarna inni, eins og þeir hefðu verið þarna í margar vikur. Við gáfumst bara upp, skiptum bókunum úti og komum svo aftur ferskar í ferska búð daginn eftir:)
En fyrsti dagurinn er semsagt á morgun þá er hraðtafla sem er bara fínt og svo byrjar alvaran á fimmtudaginn.
Ég er svona að spá hvort maður taki ekki "loka-sumardjamm" um helgina, bara svona til að kveðja sumarið áður en maður liggur sveittur yfir bókunum...eða veit ekki
Það sem stóð uppúr hjá mér í sumar var klárlega þjóðhátíðin,ekkert sem getur toppað hana, hún var snilld!!
Ég fór ekker til útlanda í sumar sem hefur held ég ekki gerst áður en ég fór nú samt þrisvar í byrjun árs, eða kom heim frá Kúbu í byrjun ársins og svo tvisvar til DK.
Svo fara alveg að koma myndir frá Menningarnótt sem var mjög skemmtilegt kvöld, sumir voru fullari en aðrir á meðan Þórdísin var bara á bíl:D
En allavega að lokum ætlaði ég bara að koma með nokkrar sumarmyndir síðan einn góðan sumardag núna í sumar:)
Ég og Dagný tókum línuskautana úr skápnum og skelltum okkur í heimsókn til Kristins
Svo fór ég með litlu frænku mína í hjólatúr, hún er mesta krútt í heimi
Dagný litla frænka með Tóbías litla yndislega hundinn hennar ömmu minnar

Svo skelltum við okkur á trampólínið heima hjá Vigdísi frænku, vá tékkiði hvað Dagný er mikið í loftinu..hehe
Hérna er Aron og frænka okkar frá bandaríkjunum, Rebekka. Henni fannst þetta algjör snilld
Ég var langbest á þessu trampólíni sko
Vá mér fannst þetta ekkert lítið gaman
 
Ætlaði ekki að hafa þetta lengra, sjáumst í skólanum!
 
Þórdís 


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 23:24:54 / þórdís

Mynd dagsins

 Ég er svo skíthrædd við krókódíla, mér finnst þeir ógeðsleg dýr og var einu sinni að sigla í bandaríkjunum á vatni með krókódílum, reyndar hétu þeir alligators á ensku sem á að vera eitthvað annað en krókódílar en anyways, ég sá þessa mynd á netinu og langaði bara að sýna ykkur hana......sjiiiiit

 Ojj eruði að djóka með ógeði eða.....væri ég búin að drrrrepast úr hræðslu

 

veit samt ekki alveg af hverju engin af krókódílunum eru í vatninu en só 


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 22:34:59 / þórdís

Lífið er yndislegt

Já lífið er svo sannarlega yndislegt þessa dagana, eða var það allavega seinustu helgi því þá var einmitt blessaða verslunarmannahelgin og eins og svo margir aðrir fórum við stór hópur og kíktum á stemminguna á ÞJÓÐHÁTÍÐ. Við vorum nokkur saman í húsi sem var snilld og Eva reddaði bara á seinustu stundu. Við vorum Ég, Sunna, Kristinn, Kári, Eva, Fannar, Gunnar, Kamilla, Johnny og Hildur Guðný, Binni ætlaði að vera með okkur en var einhvern veginn alltaf " á leiðinni" einhverra hluta vegna..... Myndarhópur þarna á ferð og gat ekki klikkað.

Án gríns þá er þjóðhátíð eitthvað sem enginn á að láta framhjá sér fara! Ég var að fara í annað skipti og þetta toppaði árið í fyrra... sem segir að þetta verður alltaf skemmtilegra og skemmtilegra sjit sko.

En ég vildi bara segja að ég er búin að láta myndirnar inn og þær eru eitthvað um 300, mjög mikið samt af sama fólkinu en só... Það verða teknar fleiri myndir á næsta ári þegar ég fer því Ingigerður frænka ætlar að kaupa fyrir mig myndavél í Ameríkunni og ég fæ hana á sunnudaginn, get ekki beðið, hún er sko geðsjúk!!

En já tékkiði á myndunum mínum sæta fólk, þær eru

hér

Nokkrar myndir frá djammi heima hjá mér með stelpunum í júlí:)

 

 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 01:44:19 / þórdís

Upphitun fyrir Þjóðhátíð

Allir og þá meina ég ALLIR að mæta og sjá þessa snilldar bræður hita upp fyrir Þjóðhátíð Fimmtudaginn 2.ágúst á Hverfisbarnum!!!!
Stuðið byrjar klukkan 21.00 og bjór á tilboði!!
Skiptir engu hvort þú farir á þjóðhátíð eða ekki, vertu með í stemmingu og ég tala nú ekki um ef þú ert hfj- ingur þá ber þér skylda til að mæta því við eigum að standa saman.... og hafa gaman:D (æj lélegt)
Auglýsingin mín er ekki eins flott og Heiðdísar en ég kom skilaboðunum til skila:D
Ætlar þú ekki að mæta?!?!?! 
Ég fór sko í fyrra og það var ekkert lítið gaman, þeir héldu uppi stuðinu lengi lengi á meðan fólk var svona semí að koma sér í gírinn fyrir helgina:) Algjör snilld
Og svo er það bara þjóðhátíð:D
Æj þessi verður ekki í ár....:(
Sonja ætlar að beila en Kári hringdi í mig drullusáttur í dag og sagðist ætla að koma með.
Arrrrggghh geggjað!!!
Sjáumst þar;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 00:29:22 / þórdís

Jæææja

Já ég skal nú segja ykkur það... allt að gerast en ég ætla ekki að hafa þetta neitt langt hjá mér en ég vildi bara segja að ég er búinn að setja myndir. Fór með Mardísi á snilldar goslokahátíð í Eyjum... ég hafði mínar efasemdir um þetta fyrst en svo rættist heldur betur úr þessu hjá okkur, þessir eyjapeyjar kunna sko að skemmta sér:D En við fórum bara með Herjólfi á föstudeginum klukkan 12 og ég náði að sofa allan tímann sem var snilld. Og svo var mikið djammað um kvöldið, ég var aðeins slakari seinna kvöldið enda ekkert smá þreytt bæði eftir gærdaginn og svo löbbuðum við líka Heimaklett á laugardeginum..

 

En svo toppaði það auðvitað á sunnudeginum þegar við komum heim að Sunna Björg snillingur var loksins komin heim af skipinu...

Já og ég er líka búinn að setja inn myndir frá frænku ferðinni minni til Köben í Mars (bara svona fyrir ykkur frænkur mínar sem langar að skoða).



Stína, Mamma og Ingigerður

Bidda og Ester hressar

Heiðdís og færeyski gaurinn sem við hittum, hann er NÁKVÆMLEGA eins og Jógvan!!!

 

Við í siglingu um Köben

Þórdís out;) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 19:49:24 / kristrún

Fyrir þá sem ekki skilja afhverju Kristrún er hrædd við ketti.....

Í gegnum tíðina þá hef ég orðið fyrir miklu aðkasti vegna hræðslu minnar við ketti.... fólki finnst það eikkað skrítnara heldur en að vera hrædd/ur við flugur eða kóngulær ( sem eru by the way svo lítil dýr að það þarf ekki nema þumalinn til að ganga frá þessum greyjum) en allavega þá bara langar mig að sýna þeim sem ekki hafa trú á því að kettir séu hættulegir, fólkinu sem tönglast á því við mig ,,Kristrún í alvöru hvað helduru að þessi litlu sætu dýr geri?" að það er ekkert endilega alveg rétt hjá þeim..... Hver veit hvað þessi dýr sem sofa á daginn gera í skjóli nætur.......hmmmm

 

Elskuleg dýr....?????


» 12 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 10:44:22 / þórdís

Jæja

Vá okey ég og Kristrún erum kannski ekki alveg þeir ofurbloggarar sem við þykjumst vera en það er auðvitað komið sumar og þá er maður bara að gera allt aðra hluti heldur en að hanga inni og skrifa á bloggið hvað maður er búinn að vera að bralla. En eins og kannski margir vita er ég að vinna í Golfskálanum Keili uppá Holti og er það bara mega fín vinna, alveg fullt að gera og svo reynir maður að skreppa á æfingar á milli... tekst misvel. En Sunnan mín er loksins að koma heim, er búinn að vera að vinna á skemmtiferðaksipi í Noregi í alltof langan tíma!!! Hún kemur eftir viku og ég get ekki beðið, er búinn að sakna hennar ekkert smá. Oog uh já ég er því miður ekki búinn að fara í eina útilegu í sumar, mér finnst það ekkert smá súrt en allavega þá er Mardís búinn að sannfæra mig um að koma með henni til eyja næstu helgi að djamma með systur hennar þar sem ég er í fríi alla helgina:) Það verður vonandi gaman, smá breyting frá djamminu hérna heima, pretty much same old same old.....

En svo er það auðvitað ÞJÓÐHÁTÍÐ um verslunarmannahelgina!!!!!!!! Ohhhh ég, Sunna og Kristinn erum búinn að panta okkur far og komin með gistingu hjá frænku minni sem verður bara geggjað!!!! Hvert ætla samt allir að fara??


 

 

 

Þurfum við að ræða þetta eitthvað frekar??? Nei klárlega ekki, það eru ALLIR að fara!!! 


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 00:39:29 / kristrún

Ótrúlegt hvernig heimurinn getur virkað......

Það er alveg rosalega skrítið hvernig heimurinn virkar stundum. Litla prinsessan mín hún Sigurrós sem er ekki nema 7 daga gömul greindist með þrengingu á ósæð í miðvikudaginn síðastliðinn. Útaf þessu þurfti engillinn litli að fara í rúmlega fjögurra tíma aðgerð ekki nema dags gömul, hugsa sér þetta litla kríli hefur gengið í gegnum meira á sinni stuttu ævi heldur en flest eldra fólk.

Nú hef ég komist að þeirri niðurstöðu að það er enn meiri dugur í þessari litlu múslu heldur en nokkurn tímann mér eða flestum öðrum (no offense) sem ég þekki, því að hún hefur komið öllum í kringum sig og þ.á.m læknunum alveg rosalega á óvart með hreint út sagt alveg ótrúlega góðum og hröðum bata.

Nú er bara næsta skref hjá snúllunni að halda áfram að vera svona mikill dugnaðarforkur svo að Strúna frænka geti knúsað hana almennilega:P

Hérna er svo litla fegurðardrottningin rétt áður en að hún fór í aðgerð, ótrúlega falleg ég veit:haha:


» 11 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 19:00:37 / þórdís

Gerist ekki krúttlegra

Æjj við erum svo krúttlegar ég og Kristrún, nú blogga ég bara um systir mína og hún um sína en það vill svo skemmtilega til að systir hennar Kristrúnar er nýbúinn að eignast lítinn engil sem allir voru búnir að bíða spenntir eftir. Og systir mín er eins og svo margir vita ólétt líka og váá hvað ég á eftir að ofsækja það barn! En þau hafa ákveðið að fá ekki að vita kynið sem gerir mér svolítið erfitt fyrir þar sem ég er með hugmynd að gjöf sem krefst þess að ég fái að vita kynið, en ég er samt ekkert neitt svakalega bjartsýn að ég fái að vita það ef þau vilja það ekki...... En ömmu minni dreymdi um daginn að það yrði strákur, mig reyndar líka en væri alveg til í að fá litla prinsessu. Endilega látið mig vita ef ykkur dreymir eitthvað eða fáið einhver "sign" um hvað þið haldið að þetta sé;) Enda á einni mynd af dúllunni minni síðan í Köben um daginn:

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9